Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,4% á milli mánaða frá maí til júní 2021. Þetta er aðeins minni hækkun en var í mánuðinum á undan. Hægt er að lesa betur um það hér: Hækkun íbúðaverðs í maí 2021.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 16%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 5,8% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 10,1% samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.
Sjá einnig: 7,4% hækkun á fasteignamati
Verð á fjölbýli hækkaði um 1,4% á meðan verð á sérbýli hækkaði um 1,7%.
Verulegar verðhækkanir hafa verið á fasteignum á undanförnum þremur mánuðum en hægt er að lesa betur um það hér: Methlutfall íbúða seldist yfir ásettu verði.