Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3% á milli mánaða frá maí til júní 2021 samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.
Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 0,9%.
Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 647 samningar, sem þinglýst var í júní 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júní 2021 eru því unnar upp úr 538 leigusamningum sem þinglýst var í júní 2021.
Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júní 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.
Stúdíó íbúð | 2 herbergi | 3 herbergi | 4-5 herbergi | |
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes | 4454 | 3307 | 2767 | 2546 |
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar | 4067 | 2978 | 2598 | 1771 |
Kópavogur | 2975 | 2862 | 2550 | 2228 |
Garðabær og Hafnarfjörður | 3421 | 2929 | 2645 | 2146 |
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur | – | 2786 | 2717 | 2255 |
Breiðholt | 4351 | 2974 | 2560 | 1927 |
Kjalarnes og Mosfellsbær | – | – | – | 2381 |
Suðurnes | 3138 | 2404 | 1941 | 1726 |
Vesturland | – | 2120 | 1679 | 1832 |
Vestfirðir | – | – | 1564 | – |
Norðurland nema Akureyri | – | 1632 | – | 1023 |
Akureyri | – | 2461 | 1957 | 1952 |
Austurland | – | 1965 | – | – |
Suðurland | – | 2440 | 1585 | 2004 |