fbpx
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on linkedin
LinkedIn
Ægir Hreinn Bjarnason

Ægir Hreinn Bjarnason

Starfar hjá Trausta fasteignasölu
690-5220
aegir@trausti.is

Ertu í söluhugleiðingum?
Fáðu frítt söluverðmat með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,3% á milli mánaða frá júní til júlí 2021 samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 1,7%.

Sjá einnig: Hver er meðalaldur fyrstu kaupenda?

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 542 samningar, sem þinglýst var í júlí 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júlí 2021 eru því unnar upp úr 460 leigusamningum sem þinglýst var í júlí 2021.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júlí 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð2 herbergi3 herbergi4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes3795329429662981
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar4568321725422515
Kópavogur3742270524972341
Garðabær og Hafnarfjörður4977330525182286
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur4905294923112366
Breiðholt3536315926532078
Kjalarnes og Mosfellsbær24242385
Suðurnes277820381649
Vesturland191219091684
Vestfirðir
Norðurland nema Akureyri11821429
Akureyri3170237120251836
Austurland1891
Suðurland251418651671

Skráðu þig á póstlista

Við sendum fréttir af fasteignamarkaðnum, góð ráð og fleira tengt fasteignum :)

Tengt efni