Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,2% á milli mánaða frá ágúst til september 2021. Þetta er minni hækkun en var í mánuðinum á undan. Hægt er að lesa um það hér: Hækkun vísitölu íbúðaverðs í ágúst 2021.
Sjá einnig: Viljinn til að leigja húsnæði fremur en að búa í eigin húsnæði eykst á milli ára
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 16,6%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,8% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,5% samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs: