fbpx
Facebook
Twitter
LinkedIn
Picture of Ægir Hreinn Bjarnason

Ægir Hreinn Bjarnason

Starfar hjá Trausta fasteignasölu
690-5220
aegir@trausti.is

Ertu í söluhugleiðingum?
Fáðu frítt söluverðmat með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6% á milli mánaða frá september til október 2022. Enn er hækkun á fasteignamarkaði en þó ekki eins mikil og hefur verið.

Það verður spennandi að sjá hvað gerist á næstu mánuðum en þó svo að fasteignamarkaður sé enn að hækka er það töluvert minni hækkun en hefur verið. Hækkunin er minni en var í síðasta mánuði en þá var hækkunin 0,8% á milli mánaða frá ágúst til september 2022.

Sjá einnig: Hvað gerist næst á fasteignamarkaði?

12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 21,5%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,0% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 7,5% samkvæmt HMS.

Sjá einnig: Hröð lækkun á íbúðum sem seljast yfir ásettu verði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu heldur einnig áfram að hækka en vísitalan hækkaði um 0,6% á milli mánaða frá september til október 2022 samkvæmt HMS.

Skráðu þig á póstlista

Við sendum fréttir af fasteignamarkaðnum, góð ráð og fleira tengt fasteignum :)

Tengt efni