Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,5% á milli mánaða frá nóvember til desember 2023, og hefur þá hækkað fimmta mánuðinn í röð. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 4,5%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,5% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,9%.
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat
Sérbýlishluti vísitölunnar lækkaði um 2,1% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli lækkaði um 0,2% á milli mánaða.
Sjá einnig: Hvað gerist á fasteignamarkaði árið 2024
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs: