Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,75% á milli mánaða frá júní til júlí 2024. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 11% á meðan verðbólga stendur í 6,3%.
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat
Sérbýlishluti vísitölunnar á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,9% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli hækkaði aðeins um 0,1% á milli mánaða.
Sérbýlishluti vísitölunnar á landsbyggðinni hækkaði um 1,2% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli hækkaði um 2,6% á milli mánaða.
Sjá einnig: 16,1% hækkun á fasteignaverði 2024?
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs: