Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða frá júlí til ágúst 2024. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 10,8% á meðan verðbólga stendur í 6%.
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat
Sérbýlishluti vísitölunnar á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,2% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli hækkaði um 0,9% á milli mánaða.
Sérbýlishluti vísitölunnar á landsbyggðinni hækkaði um 1,3% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli lækkaði um 0,18% á milli mánaða.
Sjá einnig: Aurbjörg auðveldar leit að hagstæðara húsnæðisláni
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs: