Hér fyrir neðan getur þú séð vísitölu leiguverðs:
- Eldri vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu nær frá janúar 2011 til maí 2023.
- Sameinuð vísitala leiguverðs er annars vegar byggð á eldri vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar nýrri vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Vísitalan er sameinuð í maí 2023 og tekur þá gildið 100.
Ný vísitala leiguverðs byggir á leigusamningum um hefðbundnar íbúðir sem eru í eigu einstaklinga og fyrirtækja sem rekin eru í hagnaðarskyni. Reiknað er meðalfermetraverð í 6 flokkum eftir herbergjafjölda og niðurstöður vegnar saman með veltu síðustu 12 mánaða. Stuðst er við leigusamninga síðastliðna tvo mánuði.
Tilgangur leiguvísitölunnar er að endurspegla þróun á markaðsvirði leigu og er hún ekki ætluð til vísitölubindingar á leigusamningum.