Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,6% á milli mánaða frá apríl til maí 2021. Verð á fjölbýli hækkaði um 1,4% á meðan verð á sérbýli hækkaði um 2,3%.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 14,6%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 7,7% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,1% samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,15% á milli mánaða frá apríl til maí 2021.
12 mánaða hækkun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 1,3%.