fbpx

Yfir helmingur íbúða selst yfir ásettu verði

Yfirleitt hefur hlutfallið á íbúðum sem seljast yfir ásettu verði verið 7-15% en í mars seldist í fyrsta sinn yfir helmingur íbúða yfir ásettu verði eða 51,2% íbúða. Í febrúar var hlutfallið 46,4%. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Sjá einnig: Fasteignamarkaðurinn 2021 Meðalsölutími íbúða hefur aldrei verið styttri “Meðalsölutími íbúða í mars… Continue reading Yfir helmingur íbúða selst yfir ásettu verði

Velta á fasteignamarkaði hækkar á milli mánaða

Mánaðarvelta fasteigna í mars 2022 var 69.720 milljónir króna eða tæplega 70 milljarðar. Mánaðarvelta á höfuðborgarsvæðinu var 50.672 milljónir króna eða rúmlega 50 og hálfur milljarður. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár. Sjá einnig: Fasteignamarkaðurinn 2021 Fjöldi kaupasamninga í mars 2022 voru 662 á höfuðborgarsvæðinu en þar af voru 94 kaupsamningar á sérbýli, 498 kaupsamningar… Continue reading Velta á fasteignamarkaði hækkar á milli mánaða

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 22,5% síðastliðna 12 mánuði

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,5% á milli mánaða frá janúar til febrúar 2022. Sjá einnig: Fasteignamarkaðurinn 2021. 12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 22,5%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,1% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,6% samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár. Hér fyrir neðan er hægt að sjá… Continue reading Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 22,5% síðastliðna 12 mánuði

Fasteignamarkaðurinn 2021

Það var margt sem gekk á á fasteignamarkaðnum árið 2021 og nánast öll met voru sleginn. Það var mikið um veltu og framboð húsnæðis til sölu minnkaði svakalega eins og sjá má hér, sem átti stóran hlut í því að fasteignaverð hækkaði svo ört. “Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var… Continue reading Fasteignamarkaðurinn 2021

Velta á fasteignamarkaði ekki verið minni síðan í júní 2020

Mánaðarvelta fasteigna í janúar 2022 var 52.030 milljónir króna eða rúmlega 52 milljarðar. Mánaðarvelta á höfuðborgarsvæðinu var 38.108 milljónir króna eða rúmlega 38 milljarðar. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár. Sjá einnig: Mikill samdráttur í framboði íbúða en salan haldist góð Fjöldi kaupasamninga í janúar 2022 voru 531 á höfuðborgarsvæðinu en þar af voru 78… Continue reading Velta á fasteignamarkaði ekki verið minni síðan í júní 2020

Mikill samdráttur í framboði íbúða en salan haldist góð

Í byrjun febrúar voru aðeins 1.031 íbúðir til sölu á landinu en það er um 74% færri íbúðir en þegar mest lét í maí árið 2020 þegar nærri 4.000 íbúðir voru til sölu. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fyrir febrúar 2022. Sjá einnig: Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 18,4% síðastliðna 12 mánuði… Continue reading Mikill samdráttur í framboði íbúða en salan haldist góð

Metfjöldi kaupsamninga um sumarhús

Alls voru 603 kaupsamningar um sumarhús og lóðir undirritaðir í fyrra samkvæmt gögnum Þjóðskrár. Þetta er metfjöldi en hann hefur nærri því tvöfaldast frá því sem var árið 2019 en þá voru ríflega 300 kaupsamningar undirritaðir. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Það sem veldur þessu eru líklegast lægri vextir, aukinn sparnaður og færri ferðalög… Continue reading Metfjöldi kaupsamninga um sumarhús

Hvert var meðalfermetraverð á þínu svæði árið 2021 – landsbyggðin

Langar þig að vita hvert meðalfermetraverðið er á landsbyggðinni árið 2021? Í þessari frétt getur þú séð meðaltal á fermetrasöluverði á landsbyggðinni á sérbýli og fjölbýli fyrir eftirfarandi stærðir: 20-60fm, 60-120fm, 120-200fm, 250+ fyrir árið 2021. Sjá einnig: Hvert var meðalfermetraverð í þínu bæjarfélagi árið 2021 – höfuðborgarsvæðið. Hæsta fermetraverðið var 493.769kr í stærðinni 20-60fm fjölbýli… Continue reading Hvert var meðalfermetraverð á þínu svæði árið 2021 – landsbyggðin

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 18,4% síðastliðna 12 mánuði

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,8% á milli mánaða frá nóvember til desember 2021.  Þetta er meiri hækkun en var í mánuðinum á undan. Hægt er að lesa um það hér: 17% hækkun á vísitölu íbúðaverðs. Sjá einnig: Hvert var meðalfermetraverð í þínu bæjarfélagi árið 2021 – höfuðborgarsvæðið 12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur… Continue reading Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 18,4% síðastliðna 12 mánuði

Hvert var meðalfermetraverð í þínu bæjarfélagi árið 2021 – höfuðborgarsvæðið

Langar þig að vita hvert meðalfermetraverðið var í þínu bæjarfélagi árið 2021? Í þessari frétt getur þú séð meðaltal á fermetrasöluverði á höfuðborgarsvæðinu á sérbýli og fjölbýli fyrir eftirfarandi stærðir: 20-60fm, 60-120fm, 120-200fm, 250+ fyrir árið 2021. Sjá einnig: 17% hækkun á vísitölu íbúðaverðs Hæsta fermetraverðið var 763.633kr í stærðinni 20-60fm fjölbýli í Kópavogi. Lægsta fermetraverðið… Continue reading Hvert var meðalfermetraverð í þínu bæjarfélagi árið 2021 – höfuðborgarsvæðið