Fjöldi kaupasamninga í júní 2021 voru 768 á höfuðborgarsvæðinu en 1.296 um land allt.
Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár.
Mánaðarvelta fasteigna í júní 2021 var 68.226 milljónir króna eða rúmlega 68 milljarðar. Mánaðarvelta á höfuðborgarsvæðinu var 48.025 milljónir króna eða rúmlega 48 milljarðar.
Þegar júní 2021 er borinn saman við maí 2021 fækkar kaupsamningum um 9,9% og velta lækkar um 7,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 6,3% á milli mánaða og velta lækkaði um 6,1%.
Sjá einnig: Aldrei fleiri kaupsamningar á fasteignamarkaði
Þjóðskrá setti einnig frétt inn um fjöld leigusamninga í júní 2021. Heildarfjöldi leigusamninga á landinu var 574 í júní 2021 og heildarfjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu voru 396.
Sjá einnig: Fasteignavelta helst svipuð á milli mánaða.