fbpx
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on linkedin
LinkedIn
Ægir Hreinn Bjarnason

Ægir Hreinn Bjarnason

Starfar hjá Trausta fasteignasölu
690-5220
aegir@trausti.is

Ertu í söluhugleiðingum?
Fáðu frítt söluverðmat með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Lítið framboð er á íbúðum undir 60 milljónum en meira en 85% íbúða á höfuðborgarsvæðinu eru verðlagðar á yfir 60 milljónum. Þetta er eitt merki þess að erfitt sé fyrir fyrstu kaupendur að koma inn á húsnæðismarkaðinn. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu HMS fyrir júní 2024.

Fleiri íbúðir seljast á yfirverði

“Um 19% allra íbúða seldust á yfirverði í apríl. Hlutfallið er hærra á höfuðborgarsvæðinu eða 21,3% en hlutfall þeirra er 18,1% í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Á báðum svæðum hefur hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði vaxið með hverjum mánuði á þessu ári en hátt
hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði bendir til hækkandi verðs á íbúðum. Hlutfallið nú er á svipuðum slóðum og það var í byrjun hækkunarskeiðs á fasteignamarkaði í lok árs 2016 og sömuleiðis í byrjun hækkunarskeiðsins í Covid um mitt ár 2020. Talað er um að
íbúð seljist á yfirverði þegar að fjárhæð í kaupsamningi er hærri samanborið við síðustu fasteignaauglýsingu íbúðar á vefnum fasteignir.is.
Á landsbyggðinni er hlutfallið sveiflukenndara og var 8,3% í apríl eftir að hafa verið 14,3% í mars. Ein ástæða lækkunar hlutfallsins á landsbyggðinni er sú að hlutfallslega færri íbúðir í fjölbýli seldust í mánuðinum samanborið við sérbýlishús. Um það bil tvöfalt
algengara er á landsbyggðinni að íbúðir í fjölbýli gangi kaupum og sölum á yfirverði samanborið við sérbýlishús,” segir í skýrslunni.

Leiguverðvísitalan hækkaði um 3,2% í maí

Vísitala leiguverð hækkaði um 3,2% á milli mánaða og var 113,3 stig í maí 2024. Vísitalan hefur hækkað um 13,3% á milli maímánaða 2023 og 2024 en til samanburðar hækkaði vísitala íbúðaverðs um 8,4% og verðbólga mældist 6,2% á sama tímabili.

Fasteignamat íbúða fyrir 2025 lækkar að raunvirði

“Í lok maímánaðar gaf HMS út nýtt fasteignamat sem tekur gildi um næstu áramót en fram að þeim tíma hafa eigendur tækifæri til gera athugasemdir. Nýja matið er 3,2% hærra en fasteignamat síðasta árs. Verðbólga var hins vegar 6,6% yfir sama tímabil svo fasteignamatið lækkar að raunvirði, en það gerðist síðast árið 2010.
Nýtt heildarmat fasteigna er 15.300 milljarðar króna, sem er rúmlega fjórum sinnum meira en landsframleiðsla Íslands. Fasteignamatið hækkar um 2,1% á milli ára á höfuðborgarsvæðinu, en á landsbyggðinni nemur hækkunin um 6,6% að meðaltali,” segir í skýrslunni.

Skráðu þig á póstlista

Við sendum fréttir af fasteignamarkaðnum, góð ráð og fleira tengt fasteignum :)

Tengt efni