fbpx
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on linkedin
LinkedIn
Ægir Hreinn Bjarnason

Ægir Hreinn Bjarnason

Starfar hjá Trausta fasteignasölu
690-5220
aegir@trausti.is

Ertu í söluhugleiðingum?
Fáðu frítt söluverðmat með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Hver er munurinn á fasteignamati og söluverðmati? Í þessari frétt verður farið yfir muninn á þessum tveim hlutum og tilgang beggja.

Fasteignamat er gangverð, umreiknað til staðgreiðslu, sem ætla má að eignin hefði haft í kaupum og sölum í febrúarmánuði. Söluverð eða markaðsmat fasteignar er það sem eignin gæti hugsanlega selst fyrir í dag.

Fasteignamat
Hægt er að sjá fyrirhugað mat frá og með 1. júní ár hvert. Fasteignaeigendum er tilkynnt um fyrirhugað mat í júní. Matið tekur svo gildi 31. desember.

Byggingarfulltrúar í hverju sveitarfélagi fyrir sig senda Þjóðskrá upplýsingar um allar nýjar fasteignir, breytingar á þeim og upplýsingar um niðurrifin hús og nýjar eignaskiptayfirlýsingar. Skráningu eignanna í fasteignaskrá er þá breytt í samræmi við tilkynningarnar. 

Tilgangur fasteignamats
Tilgangur fasteignamats, samkvæmt Þjóðskrá, er fyrst og fremst að skapa grundvöll fyrir álagningu opinberra gjalda en fasteignamatið er stofn fasteignagjalda og erfðafjárskatts. Fasteignagjöld miðast þar með við mat á febrúarverðlagi ári áður en gjöldin eru lögð á.

Fasteignamat hefur verið notað sem viðmið í ýmsum öðrum tilgangi. Til dæmis er fjárhæð stimpilgjalds vegna þinglýsingar kaupsamnings háð fasteignamati eignar. Enn fremur miða sumar lánastofnanir veðhæfni fasteigna við ákveðið hlutfall af fasteignamati.

Sjá einnig: 7,4% hækkun á fasteignamati

Söluverðmat
Söluverðmat eða markaðsverð fer mikið eftir framboði og eftirspurn en þá er verið að reikna hvað fasteignin myndi seljast á í dag. Þetta mat getur breyst á stuttum tíma á meðan fasteignamat gildir allt árið. Fasteignasalar nota oft nýlega sölu á sambærilegum eignum við að reikna út söluverðmat.

Tilgangur söluverðmats
Tilgangur söluverðmats er að finna út hvað eignin myndi seljast á í dag ef hún væri sett á sölu. Markaðsverð eignar er sú fjárhæð sem fengist fyrir hana í peningum eða jafngildi þeirra ef hún væri boðin til sölu á frjálsum markaði og hæfilegur tími ætlaður til sölunnar.

Nánari upplýsingar um fasteignamat 2022

Eigendur fasteigna geta frá 15. júní nálgast tilkynningarseðil um mat á eignum sínum í pósthólf sitt á www.island.is. 
Langflestar fasteignir eru endurmetnar árlega út frá nýjustu matsforsendum og byggir meðal annars á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2021. Það tekur gildi 31. desember 2021 og gildir fyrir árið 2022. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2021.

Skráðu þig á póstlista

Við sendum fréttir af fasteignamarkaðnum, góð ráð og fleira tengt fasteignum :)

Tengt efni