Smárahverfið byrjaði í byggingu rétt um 1990 og síðan var stærsta verslunarmiðstöð Íslands, Smáralindin, reist árið 2001 og hefur fengið ófáa gesti til sín síðan.
Hjá Smáralind eru einnig 2 turnar þar sem er mikið af skrifstofum og Smáratorg við hliðin á, þar sem Bónus, Metro og Rúmfatalagerinn eru t.d. með aðstöðu.
Þar er einnig uppeldisfélagið mitt, Breiðablik, staðsett í Smáranum og Fífan þar tengd við.
Í hverfinu er grunnskólinn Smáraskóli og líkamsræktin Sporthúsið.
Fermetrasöluverð á sérbýli er búið að hækka um 9,78% að meðaltali á ári síðustu 5 ár og fermetrasöluverð á fjölbýli er búið að hækka um 11,66% að meðaltali á ári síðustu 5 ár.
Leiguverð hefur hækkað um 6,33% að meðaltali síðustu 5 ár.
Þessi söluverð eru miðuð við hverfin Hjallar og Smárar, frá 2015 – 2020
Það er einnig verið að byggja mjög spennandi nýbyggingar fyrir ofan Smáralindina, Sunnusmára og á Nónhæðinni. Hér er hægt að skoða þær íbúðir betur https://www.201.is/ og https://nonhaed.is/
Fyrir ofan Sunnusmára er mikið um atvinnuhúsnæði, bæði skrifstofur og veitingastaðir.
Fjöldi íbúa í póstnúmerinu 201 fór úr 6.480 árið 2001 í 9.704 árið 2020. Smárar, Foldir og Lindir tilheyra póstnúmerinu 201