Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,3% á milli mánaða frá janúar til febrúar 2023. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 12,4%. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,9% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 0,2%.
Sérbýlishluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli hækkaði um 0,4% á milli mánaða.
Eins og við töluðum um hér þá mun ákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um stýrisvaxtabreytingu verða birt í dag. Það verður spennandi að sjá hvaða ákvörðun verður tekin.
Sjá einnig: Fasteignamarkaður á niðurleið
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs: