Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6% á milli mánaða frá janúar til febrúar 2021. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,9% á meðan verð á sérbýli lækkaði um 0,6%. Þetta er annan mánuðinn í röð þar sem verð á sérbýlum lækkar á milli mánaða.
12 mánaða hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá enn í 7,3%.
Leiguverð lækkaði um 1,5% á milli mánaða frá janúar til febrúar 2021. Þetta er annan mánuðinn í röð þar sem leiguverð lækkar.
12 mánaða lækkun leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 3,2%.