Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2% á milli mánaða frá janúar til febrúar 2023 samkvæmt nýjustu tölum HMS.
Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,3%.
Sjá einnig: Íbúðaverð aftur á uppleið?
“Vísitala leiguverðs byggir á þinglýstum leigusamningum. Hafa verður í huga að alls ekki öllum leigusamningum er þinglýst og ekki er víst að úrtakið gefi óbjagaða mynd af þróun leiguverðs. HMS hefur nú tekið í notkun leiguskrá í húsnæðisgrunni sínum. Því má búast við að þinglýstum leigusamningum fækki og þar með verði enn meiri hætta á að vísitala byggð á þinglýstum samningum gefi ekki rétta mynd af verðþróun. Þegar reynsla verður komin á skráningu í grunninn mun HMS nýta upplýsingar úr húsnæðisgrunni til að endurskoða aðferðir við útreikning á vísitölu leiguverðs,” segir í fréttinni.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá vísitölu leiguverðs frá því í febrúar 2011 til dagsins í dag: