Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins um talningu á íbúðum í byggingu hafa ekki verið færri íbúðir í byggingu í fjögur ár og samdráttur milli ára hefur aldrei mælst meiri.
Í þeim sveitarfélögum þar sem talning SI fór fram eru nú 4.610 íbúðir í byggingu og hefur þeim fækkað um 1.131 á milli ár.
Samdrátturinn mælist mestur á höfuðborgarsvæðinu og hafa íbúðir ekki verið færri í fjögur ár, eða síðan í mars 2017, en þar eru 3.523 íbúðir í byggingu.
Mestur samdráttur er á íbúðum sem eru á byggingarstigum 4 og 5 eða um 23% á milli ára en einnig eru mjög fáar íbúðir á fyrstu byggingarstigum og er það áhyggjuefni vegna væntanlegs framboðs á fullbúnu íbúðarhúsnæði á næstu árum.