fbpx
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on linkedin
LinkedIn
Ægir Hreinn Bjarnason

Ægir Hreinn Bjarnason

Starfar hjá Trausta fasteignasölu
690-5220
aegir@trausti.is

Ertu í söluhugleiðingum?
Fáðu frítt söluverðmat með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Þinglýst var 74 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í júní 2021. Heildarfasteignamat seldra eigna var 4.884 milljónir króna.

Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár.

Þar af voru 46 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 5.388 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 3.456 milljónir króna.

Sjá einnig: Fasteignamarkaðurinn farinn að valda áhyggjum.

Á sama tíma var þinglýst 45 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.438 milljónir króna.

Þar af voru 31 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.396 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.145 milljónir króna.

Skráðu þig á póstlista

Við sendum fréttir af fasteignamarkaðnum, góð ráð og fleira tengt fasteignum :)

Tengt efni