63 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst í september 2022. Heildarfasteignamat seldra eigna var 4.972 milljónir króna eða rúmlega 5 milljarðar.
Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.
Þar af voru 67 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 15.323 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 4.135 milljónir króna.
Sjá einnig: Fasteignavelta minnkar en kaupsamningum fjölgar
36 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins var þinglýst á sama tíma.
Þar af voru 35 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.346 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 836 milljónir króna.