Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,45% á milli mánaða frá apríl til maí 2025. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 5,72% á meðan verðbólga stendur í 3,8%.
Sérbýlishluti vísitölunnar á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 2,14% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli lækkaði um 0,27% á milli mánaða.
Sérbýlishluti vísitölunnar á landsbyggðinni hækkaði um 1,33% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli hækkaði um 1,2% á milli mánaða.
NÝTT: Rafbók um fasteignamarkaðinn.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs:
