Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,1% á milli mánaða frá maí til júní 2023. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 2,7%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,3% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,6%.
Sérbýlishluti vísitölunnar lækkaði um 0,9% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli lækkaði um 1,1% á milli mánaða.
Sjá einnig: Hvert stefnir fasteignamarkaður?
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs: