Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða frá febrúar til mars 2025. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.
12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 7,98% á meðan verðbólga stendur í 3,8%.
Sérbýlishluti vísitölunnar á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,56% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli lækkaði um 0,18% á milli mánaða.
Sérbýlishluti vísitölunnar á landsbyggðinni hækkaði um 0,09% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli lækkaði um 0,26% á milli mánaða.
Sjá einnig: Stýrivextir lækka: hvað þýðir það?
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs: